|
Fréttir
|
miðvikudagur, 03 desember 2008 |
|
Aðalfundur félagsins fyrir uppgjörsárið 2007 og starfsárið 2008 veður haldinn að Hlíðarenda þann 6. desember n.k. Dagskráin hefst kl. 13:00 í Lollastúku en þar fer fram formleg afhending á hinum nýja og glæsilega gervigrasvelli frá Valsmönnum hf til Vals. Valsmenn hf hafa staðið straum af kostnaði við uppbyggingu vallarins og er framkvæmdir nú á lokastigi en aðeins á eftir að ganga frá lýsingu og girðingu umhverfis völlinn. Formleg dagskrá aðalfundar hefst síðan kl. 14:00 í stóra salnum á 2. hæð |
|
|
þriðjudagur, 30 október 2007 |
|
Styrktarsjóður Knattspyrnufélagsins Vals, sem nefnist Hlíðarendasjóður ses hefur verið stofnaður. Áætlað er að stofnfé sjóðsins verði kr. 600 milljónir. Nú þegar hafa verið lagðar kr. 30 milljónir í sjóðinn. Hér að neðan má sjá samþykktir sjóðsins. SAMÞYKKTIR fyrir HLÍÐARENDASJÓÐ ses Styrktarsjóð Knattspyrnufélagsins Vals.
Nafn sjálfseignarstofnunarinnar heimili og tilgangur
1. gr.Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun og heitir Hlíðarendasjóðurinn ses.
2. gr.Heimilisfang sjálfseignarstofnunarinnar er Hlíðarendi við Laufásveg, Reykjavík..
3. gr. Tilgangur sjálfseignarstofnunarinnar skal vera að efla, styrkja og stuðla að vexti og viðgangi í allri starfsemi Knattspyrnufélagsins Vals og starfsemi þess.
Stofnandi sjálfseignarstofnunarinnar
4. gr.Stofnandi sjálfseignarstofnunarinnar er Valsmenn hf. kt. 491299-2239. Hvorki stofnandi né aðrir en Knattspyrnufélagið Valur njóta sérstakra réttinda í sjálfseignar-stofnuninni.
Stofnfé sjálfseignarstofnunarinnar
5. gr.Stofnfé sjálfseignarstofnunarinnar er kr. 600..000.000,--sexhundruðmilljónirkróna- og eru kr. 30.000.000,- þegar greiddar í reiðufé en stefnt er að því að greiða eftirstöðvar stofnfjárins fyrir lok árs 2009. Eftirstöðvar stofnfjárins skal bundið vísitölu neysluverðs m.v. grunnvísitölu janúar 2008.
Stjórn stofnunar og framkvæmdastjórn
6. gr.Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar skal skipuð þremur mönnum tilnefndum til tveggja ára í senn. Stjórn Valsmanna hf. tilnefnir einn mann, stjórn Knattspyrnufélagsins Vals tilnefnir einn mann, og nefndar stjórnir í sameiningu tilnefna einn mann. Í stjórn sjóðsins skulu skipaðir jafnmargir varamenn og skulu þeir skipaðir með sama hætti og aðalmenn í stjórn. Minnst tveimur mánuðum fyrir lok stjórnartíma skal formaður stjórnar afla nýrra tilnefninga. Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og gætir hagsmuna hennar gagnvart þriðja aðila. Undirskrift meiri hluta stjórnar skuldbindur sjálfseignarstofnuna. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meiri hluti stjórnarmanna sækir fund. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi haft tök á að fjalla um málið sé þess nokkur kostur. Afl atkvæða ræður afgreiðslu mála. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. Halda skal fundargerð um stjórnarfundi.
7. gr.Stjórnin skal kjósa sér formann og skipta með sér verkum að öðru leyti.
8. gr. Formaður boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist að boðað verði sérstaklega til stjórnarfundar. Sama rétt á framkvæmdastjóri, sé hann ráðinn. Stjórnin getur sett sér starfsreglur. Stjórnin ákveður sjálf þóknun sína ár hvert. Þóknun má ekki vera hærri en venjulegt getur talist, miðað við eðli og umfang starfans.
9. gr. Stjórn sjálfseignarsatofnunarinnar getur falið einstökum aðilum eða stofnunum vörslu fjármuna að hluta til eða að öllu leyti gegn umsaminni þóknun til vikomandi aðila.
10. gr. Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar getur ráðið framkvæmdastjóra og ákveður hún þá laun hans og starfskjör. Hún veitir og prókúruumboð fyrir sjálfseignarstofnunina. Sé framkvæmdastjóri ráðinn, hefur hann með höndum stjórn á daglegum rekstri sjálfseignarstofnunarinnar og kemur fram fyrir hennar hönd í öllum málefnum sem varða venjulegan rekstur. Hann sér um reikningshald og ráðningu starfsfólks. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðanda sjálfseignarstofnunarinnar allar upplýsingar um rekstur hennar sem þeir kunna að óska og veita ber samkvæmt lögum. Framkvæmdastjóri skal sjá um að bókhald sé fært í samræmi við lög og venjur og að meðferð eigna stofnunarinnar sé með tryggilegum hætti.
11. gr.Um hæfi stjórnarmanna fer samkvæmt hæfisreglum stjórnarmanna í hlutafélögum, svo og góðri viðskipta- og siðavenju.
Eðli sjálfseignarstofnunarinnar
12.gr.Sjálfseignarstofnuninni er ekki hægt að slíta. Ef af einhverjum ófyrirsjáanlegum ástæðum verður að leggja hana niður eða slíta henni skulu allar eignir sjálfseignarstofnunarinnar renna til Knattspyrnufélagsins Vals og nýttar í þágu þeirra þriggja þátta sem kveðið er á um hér að neðan. Áður en til slita getur komið þarf að bera slíka ákvörðun undir löglega boðaðan félagsfund hjá Knattspyrnufélaginu Val og löglega boðaðan hluthafafund hjá Valsmönnum hf. Sé sjálfseignarstofnuninni slitið skal fara eftir ákvæðum XIII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög með síðari breytingum, sbr. einnig XIV. kafla sömu laga, eftir því sem við getur átt.
13. gr. Aldrei má ganga á höfuðstól sjálfseignarstofnunarinnar eins og hann er reiknaður út hverju sinni á úthlutunardegi verðbættur m.v. vísitölu neysluverðs, grunnvísitölu janúar 2008. Verði í framtíðinni felld niður vísitala neysluverðs, skal miða við sambærilega mælieiningu.
14. gr. Hlíðarendasjóður skiptist í þrjár deildir:A. Rekstur eigna: Ávöxtun af kr. tvöhundruðmilljónum skal varið til að standa straum af kostnaði við rekstur og/eða uppbyggingu mannvirkja og eigna í eigu Knattspyrnufélagsins Vals.B. Rekstur afreksstarfs: Ávöxtun af kr. tvöhundruðmilljónum skal varið til að standa straum af kostnaði við rekstur afreksstarfs hjá Knattspyrnufélaginu Val.Afreksstarf er í þessu sambandi skilgreint sem allt starf í meistaraflokkum Vals.C. Rekstur unglingastarfs: Ávöxtun af kr. tvöhundruðmilljónum skal varið til að standa straum af kostnaði við rekstur unglingastarfs hjá Knattspyrnufélaginu Val.Unglingastarf er í þessu sambandi skilgreint sem allt starf í yngri flokkum hjá Knattspyrnufélaginu Vals.
15. gr. Sjálfseignarstofnunin getur haft aðrar tekjur í því formi að hún má taka við gjöfum, arfi og öðrum óreglulegum tekjum sem ráðstafað er til Vals eða sjálfseignar-stofnunarinnar.
Hvernig ráðstafa skal hagnaði eða fara með tap
16. gr. Úthlutun úr Hlíðarendasjóði skal að jafnaði fara fram tvisvar sinnum á ári, þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert, eða skv. nánari ákvörðun stjórnar í fyrsta sinn hinn 31.12.2008. Áður en til úthlutunar kemur skal tekinn til hliðar kostnaður af rekstri sjóðsins frá síðustu úthlutun. Síðan skal reikna út 1% af ávöxtun sjóðsins næstu sex mánuði á undan og leggja þá fjármuni í sérgreindan varasjóð. Varasjóðinn skal einungis nota í þeim tilvikum þegar neikvæð ávöxtun sjóðsins hefur átt sér stað næstliðna sex mánuði frá úthlutun.
17. gr. Árleg afkoma skv. rekstrarreikningi færist til hækkunar eða lækkunar á óráðstöfuðu eigin fé.
18. gr.Úthlutun úr Hlíðarendasjóði skal fara þannig fram að úthlutunarfjárhæð skal við hverja úthlutun ráðstafað í þrennu lagi og tilgreint hvaða fjárhæð skuli fara til hvers hinna þriggja tilgreindu þátta. Frekari tilgreining skal ekki eiga sér stað. Sjóðsstjórnin getur kallað eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir á hvernig fjármunum hefur verið varið af hálfu Knattspyrnufélagsins Vals.
Reikningar sjálfseignarstofnunarinnar og endurskoðun. Fjárfestingarstefna
19. gr.Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar skal ráða löggiltan endurskoðanda til eins árs í senn. Skal endurskoðandi rannsaka ársreikninga sjálfseignarstofnunarinnar fyrir hvert starfsár og eigi síðar en mánuði eftir að stjórn gengur frá honum og aldrei síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Skal senda stjórnvaldi því er tekur við ársreiknginum sjálfseignarstofnana ársreikning sjálfseignarstofnunarinnar ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðanda og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur í stjórn. Jafnframt skal stjórn Valsmanna hf. og aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals send þessi gögn.
20. gr.Starfsár og reikningsár sjálfseignarstofnunarinnar er almanaksárið. Stjórn skal móta fjárfestingarstefnu og leitast við að ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru í boði á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Við ávöxtun skal stjórnin hafa eftirfarandi til hliðsjónarHeimilt er að ávaxta fjármuni sjóðsins sem hér segir:a. Í ríkisvíxlum, ríkisskuldabréfum og víxlum og skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð íslenska ríkisins og/eða Reykjavíkurborgar,b. Í víxlum og skuldabréfum gefnum út af bönkum og sparisjóðum sem lúta eftirliti FME og skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði,c. Sem laust fé eða bundið á reikningum í bönkum og sparisjóðum,d. Í hlutabréfum í skráðum hlutabréfum á markaði,e. Í opinberum skráðum hlutabréfasjóðum, skuldabréfasjóðum eða blönduðum sjóðum sem fjárfesta í fjármunum sem falla innan liða a-d.
Breytingar á samþykktum sjálfseignarstofnunarinnar 21. gr.Til minni háttar breytinga á samþykktum þessum þarf samþykki allra stjórnarmanna sjálfseignarstofnunarinnar. Þegar það liggur fyrir þarf að bera breytingarnar undir stjórnarfund í Valsmönnum hf. og stjórnarfund hjá Knattspyrnufélaginu Val. Þessir aðilar þurfa jafnframt að samþykkja breytingarnar samhljóða.
22. gr.Til meiri háttar breytinga á samþykktum þessum þarf að uppfylla sömu skilyrði og í 20. gr., en jafnframt þarf að bera allar meiri háttar breytingar á samþykktum þessum undir löglega boðaðan hluthafafund í Valsmönnum hf. og löglega boðaðan fund í Knattspyrnufélaginu Val. Samþykki meiri hluta beggja þessara funda þarf að liggja fyrir til að meiri háttar breytingar á samþykktum þessum taki gildi.
Ábyrgðarskuldbindingar sjálfseignastofnunarinnar.
23. gr. Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar má ekki takast á hendur neinar ábyrgðir fyrir sjálfseignarstofnunina, nema sem leiða kann af eðlilegum daglegum rekstri.
Lokaákvæði og varnarþing
24. gr. Þar sem ákvæði samþykkta þessara segja ekki til um hvernig með skuli fara skal hlíta ákvæðum laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt hverju sinni.
25. gr.Verði ágreiningur um rekstur sjálfseignarstofnunarinnar og/eða hæfi stjónarmanns eins eða fleiri sem bera þarf undir dómstóla skal reka það mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Einungis má reka slíkt mál í nafni Knattspyrnufélagsins Vals eða Valsmanna hf. Þannig samþykkt hinn 17.10.2007 að Hlíðarenda við Laufásveg. |
|
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|
Á aðalfundi Valsmanna hf. sem haldinn var á Hlíðarenda þann 17. október s.l. voru veittar upplýsingar um öll framlög Valsmanna hf. til Knattspyrnufélagsins Vals frá stofnun hlutafélagsins árið 1999. Á núgildandi verðlagi nema heildarframlög Valsmanna hf. til Knattspyrnufélagsins Vals og byggingarnefndar Vals og Reykjavíkurborgar kr. 835 milljónum. Af þessari fjárhæð eru kr. 592 milljónir greiðslur til byggingarnefndarinnar. Rúmar 200 milljónir af þeirri fjárhæð gengu til uppgreiðslu á skuldum Vals en afgangurinn til byggingarframkvæmda á Hlíðarenda. Í rekstrarstyrki hafa Valsmenn hf. greitt kr. 75 milljónir. Kr. 90 milljónir hafa verið greiddar til kaupa á öllum lausum húsbúnaði, tölvu- og tækjabúnaði og öðrum lausum búnaði í nýju íþróttamannvirkin. Valsmenn hf. fjármögnuðu byggingu glerstúkunnar og hafa greitt kr. 40 milljónir upp í þá framkvæmd. |
|
|
föstudagur, 19 október 2007 |
|
Aðalfundur félagsins fór fram þann 17. október s.l. Fundurinn var vel sóttur og fór mjög vel fram. Rekstur félagsins hefur gengið mjög vel á árinu og skýrði formaður frá hag félagsins í skýrslu stjórnar og í yfirferð um árskeikning félagsins sem samþykktur var af öllum fundarmönnum. Tvær breytingartillögur voru lagðar fram á fundinum og voru þær báðar samþykktar einróma. Ný stjórn var kjörin á fundinum og hana skipa Brynjar Harðarson, Ingólfur Friðjónsson, Guðni Bergsson, Karl Jónsson, Theódór Halldórsson, Karl Axelsson og Jafet Ólafsson. Karl Axelsson og Jafet Ólafsson komu nýjir inn í stjórnina í stað Gríms Sæmundssen og Bjarna Bjarnasonar. Áður en fundurinn hófst fór fram kynning á samþykktum fyrir styrktarsjóð Valsmanna hf. |
|
|
föstudagur, 28 september 2007 |
|
Yfirlitsmynd af íbúðarbyggðinni (hafið þolinmæði til að býða eftir að myndin birtist) Samkvæmt nýju deiliskipulagstillögunni fyrir Hlíðarendasvæðið munu verða byggðar 300 íbúðir á byggingarsvæði Valsmanna hf. Þessi byggð mun verða í 4 - 7 hæða fjölbýlishúsum. Myndin gefur sýn á þær hugmyndir sem eru í gangi varðandi íbúðaruppbyggingu svæðisins. |
|
|
föstudagur, 28 september 2007 |
|
Ný deiliskipulagstillaga hefur nú verið samþykkt í borgarráði og er nú í formlegu ferli hjá Skipulagsstofnun ríkisins. Nýtt deiliskipulag ætti því að fá formlega gildistöku fyrir lok ársins. |
|
|
miðvikudagur, 26 september 2007 |
Á þessu þrívíddarmódeli sést byggingarsvæði Valsmanna hf. í heild sinni í tengslum við íþróttasvæði Vals. Þetta módel er einungis gert til að gefa hugmynd um hvernig nýja tillagan kemur til með að líta út. Módelið er ekki í nákvæmum stærðarhlutföllum |
|
|
þriðjudagur, 25 september 2007 |
|
Í hófi sem haldið var í hinni svokölluðu Vip stúku að kvöldi vígsludags, þar sem samankomnir voru meistarflokkar félagsins og margir af velunnurum þess, fór fram formleg afhending stúkunnar frá Valsmönnum hf. til Vals ásamt því að stúkunni var gefið nafn. Stúkan mun hér eftir heita Lollastúka til minningar um einn af dáðustu sonum Vals; Ellert Sölvason og var afhjúpuð mynd af Lolla við þetta tilefni. Stjórnarformaður Vals afhenti Degi Sigurðssyni framkvstj. Vals og Theódóri Hjalta Valssyni lykla að stúkunni. Kostnaður við byggingu stúkunnar ásamt undirstöðum undir stækkun hennar nemur uþb. kr. 50.000.000,- og standa Valsmenn hf. straum af öllum kostnaði við þessa framkvæmd. |
|
|
þriðjudagur, 25 september 2007 |
|
Aðalfundur félagsins fyrir árið 2006 verður haldinn að Hlíðarenda þann 17 október 2007. Fundurinn hefst kl. 20:00 samkvæmt auglýstri dagskrá. Kl. 19:30 hefst stutt athöfn þar sem formlega verður gengið frá stofnun á styrktarsjóð Valsmanna hf. fyrir Knattspyrnufélagið Val. Sjóðurinn verður þrískiptur, afrekssjóður, rekstrarsjóður og unglinga- og æskulýðssjóður. Stofnframlag er kr. 30.000.000,- en heildarstofn sjóðanna er áætlaður kr. 600.000.000,- |
|
|
laugardagur, 25 ágúst 2007 |
|
Á vígsludegi hinna nýju og glæsilegu mannvirkja Vals afhenti stjórn Valsmanna hf. aðalstjórn Vals kr. 70.000.000,- styrk til að mæta kostnaði við m.a. húsgögn, tölvubúnað, lyftingaaðstöðu og annan þann búnað sem þarf á skrifstofur, í veitingasali og móttökurými. Í heild er áætlað að kostnaður við þennan lið sem uþb. kr. 90.000.000,- Með styrkveitingu á gamlársdag að fjárhæð kr. 20.000.000,- hafa Valsmenn hf. því staðið straum af kostnaði við allan lausan búnað, húsgögn og tæki í hinum nýju mannvirkjum. |
|
|
sunnudagur, 31 desember 2006 |
|
Á árvissri athöfn Vals á gamlársdag þar sem íþróttamaður Vals er valinn, afhentu Valsmenn hf. Knattspyrnufélaginu Val kr. 20.000.000,- styrk til að mæta kostnaði við innréttingar og annað búnað sem festa þarf kaup á fyrir hið nýja og glæsilega íþróttahús félagsins. |
|
|
|