|
Framlög Valsmanna hf til Vals |
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|
Á aðalfundi Valsmanna hf. sem haldinn var á Hlíðarenda þann 17. október s.l. voru veittar upplýsingar um öll framlög Valsmanna hf. til Knattspyrnufélagsins Vals frá stofnun hlutafélagsins árið 1999. Á núgildandi verðlagi nema heildarframlög Valsmanna hf. til Knattspyrnufélagsins Vals og byggingarnefndar Vals og Reykjavíkurborgar kr. 835 milljónum. Af þessari fjárhæð eru kr. 592 milljónir greiðslur til byggingarnefndarinnar. Rúmar 200 milljónir af þeirri fjárhæð gengu til uppgreiðslu á skuldum Vals en afgangurinn til byggingarframkvæmda á Hlíðarenda. Í rekstrarstyrki hafa Valsmenn hf. greitt kr. 75 milljónir. Kr. 90 milljónir hafa verið greiddar til kaupa á öllum lausum húsbúnaði, tölvu- og tækjabúnaði og öðrum lausum búnaði í nýju íþróttamannvirkin. Valsmenn hf. fjármögnuðu byggingu glerstúkunnar og hafa greitt kr. 40 milljónir upp í þá framkvæmd.
|