Forsíða arrow Fréttir arrow Styrktarsjóður Vals
Styrktarsjóður Vals
þriðjudagur, 30 október 2007

Styrktarsjóður Knattspyrnufélagsins Vals, sem nefnist Hlíðarendasjóður ses hefur verið stofnaður. Áætlað er að stofnfé sjóðsins verði kr. 600 milljónir. Nú þegar hafa verið lagðar kr. 30 milljónir í sjóðinn. Hér að neðan má sjá samþykktir sjóðsins.

SAMÞYKKTIR fyrir HLÍÐARENDASJÓÐ ses 
Styrktarsjóð Knattspyrnufélagsins Vals. 

Nafn sjálfseignarstofnunarinnar heimili og tilgangur 

1. gr.Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun og heitir Hlíðarendasjóðurinn ses. 

2. gr.
Heimilisfang sjálfseignarstofnunarinnar er Hlíðarendi við Laufásveg, Reykjavík.. 

3. gr.
Tilgangur sjálfseignarstofnunarinnar skal vera að efla, styrkja og stuðla að vexti og viðgangi í allri starfsemi Knattspyrnufélagsins Vals og starfsemi þess. 

Stofnandi sjálfseignarstofnunarinnar
 

4. gr.
Stofnandi sjálfseignarstofnunarinnar er Valsmenn hf. kt. 491299-2239. Hvorki stofnandi né aðrir en Knattspyrnufélagið Valur njóta sérstakra réttinda í sjálfseignar-stofnuninni. 

Stofnfé sjálfseignarstofnunarinnar
 

5. gr.
Stofnfé sjálfseignarstofnunarinnar er kr. 600..000.000,--sexhundruðmilljónirkróna- og eru kr. 30.000.000,- þegar greiddar í reiðufé en stefnt er að því að greiða eftirstöðvar stofnfjárins fyrir lok árs 2009. Eftirstöðvar stofnfjárins skal bundið vísitölu neysluverðs m.v. grunnvísitölu janúar 2008. 

Stjórn stofnunar og framkvæmdastjórn
 

6. gr.
Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar skal skipuð þremur mönnum tilnefndum til tveggja ára í senn.  Stjórn Valsmanna hf. tilnefnir einn mann,  stjórn Knattspyrnufélagsins Vals tilnefnir einn mann, og nefndar stjórnir í sameiningu tilnefna einn mann. Í stjórn sjóðsins skulu skipaðir jafnmargir varamenn og skulu þeir skipaðir með sama hætti og aðalmenn í stjórn. Minnst tveimur mánuðum fyrir lok stjórnartíma skal formaður stjórnar afla nýrra tilnefninga.   Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og gætir hagsmuna hennar gagnvart þriðja aðila. Undirskrift meiri hluta stjórnar skuldbindur sjálfseignarstofnuna. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meiri hluti stjórnarmanna sækir fund. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi haft tök á að fjalla um málið sé þess nokkur kostur. Afl atkvæða ræður afgreiðslu mála. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. Halda skal fundargerð um stjórnarfundi. 

7. gr.
Stjórnin skal kjósa sér formann og skipta með sér verkum að öðru leyti.  

8. gr.
Formaður  boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist að boðað verði sérstaklega til stjórnarfundar. Sama rétt á framkvæmdastjóri, sé hann ráðinn. Stjórnin getur sett sér starfsreglur.  Stjórnin ákveður sjálf þóknun sína ár hvert. Þóknun má ekki vera hærri en venjulegt getur talist, miðað við eðli og umfang starfans. 

9. gr.
Stjórn sjálfseignarsatofnunarinnar getur falið einstökum aðilum eða stofnunum vörslu fjármuna að hluta til eða að öllu leyti gegn umsaminni þóknun til vikomandi aðila. 

10. gr.
Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar getur ráðið framkvæmdastjóra og ákveður hún þá laun hans og starfskjör. Hún veitir og prókúruumboð fyrir sjálfseignarstofnunina. Sé framkvæmdastjóri  ráðinn, hefur hann með höndum stjórn á daglegum rekstri sjálfseignarstofnunarinnar og kemur fram fyrir hennar hönd í öllum málefnum sem varða venjulegan rekstur. Hann sér um reikningshald og ráðningu starfsfólks. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðanda sjálfseignarstofnunarinnar  allar upplýsingar um rekstur hennar sem þeir kunna að óska og veita ber samkvæmt lögum. Framkvæmdastjóri skal sjá um að bókhald sé fært í samræmi við lög og venjur og að meðferð eigna stofnunarinnar sé með tryggilegum hætti.  

11. gr.
Um hæfi stjórnarmanna fer samkvæmt hæfisreglum stjórnarmanna í hlutafélögum, svo og góðri viðskipta- og siðavenju. 

Eðli sjálfseignarstofnunarinnar
 

12.gr.
Sjálfseignarstofnuninni er ekki hægt að slíta. Ef af einhverjum ófyrirsjáanlegum ástæðum verður að leggja hana niður eða slíta henni  skulu allar eignir sjálfseignarstofnunarinnar renna til Knattspyrnufélagsins Vals og nýttar í þágu þeirra þriggja þátta sem kveðið er á um hér að neðan. Áður en til slita getur komið þarf að bera slíka ákvörðun undir löglega boðaðan félagsfund hjá Knattspyrnufélaginu Val og löglega boðaðan hluthafafund hjá Valsmönnum hf.   Sé sjálfseignarstofnuninni slitið skal fara eftir ákvæðum XIII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög með síðari breytingum, sbr. einnig XIV. kafla sömu laga, eftir  því sem við getur átt. 

13. gr.
Aldrei má ganga á höfuðstól sjálfseignarstofnunarinnar  eins og hann er reiknaður út hverju sinni á úthlutunardegi verðbættur m.v. vísitölu neysluverðs, grunnvísitölu janúar 2008. Verði í framtíðinni felld niður vísitala neysluverðs, skal miða við sambærilega mælieiningu. 

14. gr.
Hlíðarendasjóður skiptist í þrjár deildir:A. Rekstur eigna:  Ávöxtun af  kr. tvöhundruðmilljónum skal varið til að standa straum af  kostnaði við rekstur og/eða uppbyggingu mannvirkja og eigna  í eigu Knattspyrnufélagsins Vals.B. Rekstur afreksstarfs: Ávöxtun af  kr. tvöhundruðmilljónum skal varið til að standa straum af kostnaði við rekstur afreksstarfs hjá Knattspyrnufélaginu Val.Afreksstarf er í þessu sambandi skilgreint sem allt starf í meistaraflokkum Vals.C. Rekstur unglingastarfs: Ávöxtun af kr. tvöhundruðmilljónum skal varið til að standa straum af  kostnaði við rekstur unglingastarfs hjá Knattspyrnufélaginu Val.Unglingastarf  er í þessu sambandi skilgreint sem  allt starf í yngri flokkum hjá Knattspyrnufélaginu Vals. 

15. gr.
Sjálfseignarstofnunin getur haft aðrar tekjur í því formi að hún má taka við gjöfum, arfi og öðrum óreglulegum tekjum sem ráðstafað er til Vals eða  sjálfseignar-stofnunarinnar. 

Hvernig ráðstafa skal hagnaði eða fara með tap
 

16. gr.
Úthlutun úr Hlíðarendasjóði skal að jafnaði fara fram tvisvar sinnum á ári, þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert, eða skv. nánari ákvörðun stjórnar í fyrsta sinn hinn 31.12.2008. Áður en til úthlutunar kemur skal tekinn til hliðar kostnaður af rekstri sjóðsins frá síðustu úthlutun. Síðan skal reikna út 1% af ávöxtun sjóðsins næstu sex mánuði á undan og leggja þá fjármuni í sérgreindan varasjóð. Varasjóðinn skal einungis nota í þeim tilvikum þegar neikvæð ávöxtun sjóðsins hefur átt sér stað næstliðna sex mánuði frá úthlutun. 

17. gr.
Árleg afkoma skv. rekstrarreikningi færist til hækkunar eða lækkunar á óráðstöfuðu eigin fé. 

18. gr.
Úthlutun úr Hlíðarendasjóði skal fara þannig fram að úthlutunarfjárhæð skal við hverja úthlutun ráðstafað í þrennu lagi og tilgreint hvaða fjárhæð skuli fara til hvers hinna þriggja tilgreindu þátta. Frekari tilgreining skal ekki eiga sér stað.  Sjóðsstjórnin getur kallað eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir á hvernig fjármunum hefur verið varið af hálfu Knattspyrnufélagsins Vals.  

Reikningar sjálfseignarstofnunarinnar og endurskoðun. Fjárfestingarstefna
 

19. gr.
Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar skal ráða löggiltan endurskoðanda til eins árs í senn. Skal endurskoðandi rannsaka ársreikninga sjálfseignarstofnunarinnar fyrir hvert starfsár og eigi síðar en mánuði eftir að stjórn gengur frá honum og aldrei síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Skal senda stjórnvaldi því er tekur við ársreiknginum sjálfseignarstofnana ársreikning sjálfseignarstofnunarinnar ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðanda og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur í stjórn. Jafnframt skal stjórn Valsmanna hf. og aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals send þessi gögn.  

20. gr.
Starfsár og reikningsár sjálfseignarstofnunarinnar er almanaksárið. Stjórn skal móta fjárfestingarstefnu og leitast við að ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru í boði á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Við ávöxtun skal stjórnin hafa eftirfarandi til hliðsjónarHeimilt er að ávaxta fjármuni sjóðsins sem hér segir:a. Í ríkisvíxlum, ríkisskuldabréfum og víxlum og skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð íslenska ríkisins og/eða Reykjavíkurborgar,b. Í víxlum og skuldabréfum gefnum út af bönkum og sparisjóðum sem lúta eftirliti FME og skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði,c. Sem laust fé eða bundið á reikningum í bönkum og sparisjóðum,d. Í hlutabréfum í skráðum hlutabréfum á markaði,e. Í opinberum skráðum hlutabréfasjóðum, skuldabréfasjóðum eða blönduðum sjóðum   sem fjárfesta í fjármunum sem falla innan liða a-d. 

Breytingar á samþykktum sjálfseignarstofnunarinnar
 
 
 
21. gr.Til minni háttar breytinga á samþykktum þessum þarf samþykki allra stjórnarmanna sjálfseignarstofnunarinnar. Þegar það liggur fyrir þarf að bera breytingarnar undir stjórnarfund í Valsmönnum hf. og stjórnarfund hjá Knattspyrnufélaginu Val. Þessir aðilar þurfa jafnframt að samþykkja breytingarnar samhljóða. 

22. gr.
Til meiri háttar breytinga á samþykktum þessum þarf að uppfylla sömu skilyrði og í 20. gr., en jafnframt þarf að bera allar meiri háttar breytingar á samþykktum þessum undir löglega boðaðan hluthafafund í Valsmönnum hf. og löglega boðaðan fund í Knattspyrnufélaginu Val. Samþykki meiri hluta beggja þessara funda þarf að liggja fyrir til að meiri háttar breytingar á samþykktum þessum taki gildi.        

Ábyrgðarskuldbindingar sjálfseignastofnunarinnar.
 

23. gr.
 Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar má ekki takast á hendur neinar ábyrgðir fyrir sjálfseignarstofnunina, nema sem leiða kann af eðlilegum daglegum rekstri. 

Lokaákvæði og varnarþing
 

24. gr.
Þar sem ákvæði samþykkta þessara segja ekki til um hvernig með skuli fara skal hlíta ákvæðum laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt hverju sinni. 

25. gr.
Verði ágreiningur um rekstur sjálfseignarstofnunarinnar  og/eða hæfi stjónarmanns eins eða fleiri sem bera þarf undir dómstóla  skal reka það mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Einungis má reka slíkt mál í nafni Knattspyrnufélagsins Vals eða Valsmanna hf. Þannig samþykkt hinn 17.10.2007 að Hlíðarenda við Laufásveg.    

 

 


© 2010 Valsmenn